Luke 21

1Þá leit hann upp og sá auðmenn leggja gjafir sínar í fjárhirsluna. 2Hann sá og ekkju eina fátæka leggja þar tvo smápeninga. 3Þá sagði hann: ,,Ég segi yður með sanni, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir. 4Hinir allir lögðu í sjóðinn af allsnægtum sínum, en hún gaf af skorti sínum, alla björg sína.`` 5Einhverjir höfðu orð á, að helgidómurinn væri prýddur fögrum steinum og heitgjöfum. Þá sagði Jesús: 6,,Þér horfið á þetta, en þeir dagar munu koma, að hér stendur ekki eftir steinn yfir steini, er eigi sé niður brotinn.`` 7En þeir spurðu hann: ,,Meistari, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess, að það sé að koma fram?`` 8Hann svaraði: ,,Varist að láta leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni og segja: ,Það er ég!` og ,Tíminn er í nánd!` Fylgið þeim ekki. 9En þegar þér spyrjið hernað og upphlaup, þá skelfist ekki. Þetta á undan að fara, en endirinn kemur ekki samstundis.`` 10Síðan sagði hann við þá: ,,Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, 11þá verða landskjálftar miklir og drepsóttir og hungur á ýmsum stöðum, en ógnir og tákn mikil á himni. 12En á undan öllu þessu munu menn leggja hendur á yður, ofsækja yður, færa yður fyrir samkundur og í fangelsi og draga yður fyrir konunga og landshöfðingja sakir nafns míns. 13Þetta veitir yður tækifæri til vitnisburðar. 14En festið það vel í huga að vera ekki fyrirfram að hugsa um, hvernig þér eigið að verjast, 15því ég mun gefa yður orð og visku, sem engir mótstöðumenn yðar fá staðið í gegn né hrakið. 16Jafnvel foreldrar og bræður, frændur og vinir munu framselja yður, og sumir yðar munu líflátnir. 17Og þér munuð hataðir af öllum vegna nafns míns, 18en ekki mun týnast eitt hár á höfði yðar. 19Verið þrautseigir og þér munuð ávinna sálir yðar. 20En þegar þér sjáið herfylkingar umkringja Jerúsalem, þá vitið, að eyðing hennar er í nánd. 21Þá flýi þeir, sem í Júdeu eru, til fjalla, þeir sem í borginni eru, flytjist burt, og þeir sem eru á ekrum úti, fari ekki inn í hana. 22Því þetta eru refsingardagar, þá er allt það rætist, sem ritað er. 23Vei þeim, sem þungaðar eru, og þeim sem börn hafa á brjósti á þeim dögum, því að mikil neyð mun þá verða í landinu og reiði yfir lýð þessum. 24Þeir munu falla fyrir sverðseggjum og herleiddir verða til allra þjóða, og Jerúsalem verður fótum troðin af heiðingjum, þar til tímar heiðingjanna eru liðnir. 25Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðu angist þjóða, ráðalausra við dunur hafs og brimgný. 26Menn munu gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því, er koma mun yfir heimsbyggðina, því að kraftar himnanna munu bifast. 27Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýi með mætti og mikilli dýrð. 28En þegar þetta tekur að koma fram, þá réttið úr yður og lyftið upp höfðum yðar, því að lausn yðar er í nánd.`` 29Hann sagði þeim og líkingu: ,,Gætið að fíkjutrénu og öðrum trjám. 30Þegar þér sjáið þau farin að bruma, þá vitið þér af sjálfum yður, að sumarið er í nánd. 31Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að Guðs ríki er í nánd. 32Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt er komið fram. 33Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða. 34Hafið gát á sjálfum yður, að hjörtu yðar þyngist ekki við svall og drykkju né áhyggjur þessa lífs og komi svo dagur sá skyndilega yfir yður 35eins og snara. En koma mun hann yfir alla menn, sem byggja gjörvalla jörð. 36Vakið því allar stundir og biðjið, svo að þér megið umflýja allt þetta, sem koma á, og standast frammi fyrir Mannssyninum.`` 37Á daginn var hann að kenna í helgidóminum, en fór og dvaldist um nætur á Olíufjallinu, sem svo er nefnt. 38Og allt fólkið kom árla á morgnana til hans í helgidóminn að hlýða á hann.
Copyright information for Icelandic